Skelfileg viðbrögð við erfiðri stöðu

Viðbrögð þeirra, sem hafa séð ástæðu til að tjá sig um þessa sorglegu frétt eru sannarlega mismunandi. Sumum finnst þetta stórsniðugt, svo annarlegt sem það sjónarmið er, öðrum eðlileg viðbrögð í ómögulegri stöðu, enn öðrum grátlegt.

Hver sem einkaskoðun manna er á þessari hörmung, þá er þetta myndbirting á ógnvænlegri stöðu, sem margir eru komnir í. Á meðal þeirra er fjöldi manns, sem ríkisstjórnin lofaði að slá skjaldborg um og koma til hjálpar. 

Þetta gæti, hugsanlega, orðið til þess að hrista aðeins upp í þessum hnípna og úrræðasnauða hópi, sem tók að sér leiða okkur út úr ógöngunum. Viðbrögð eru þó ekki líkleg.

Ég held að tíminn sé á þrotum; Jóhanna, Steingrímur og þeirra dapurlega hirð ráða einfaldlega ekki við verkefnið.

 


mbl.is Eyðilagði íbúðarhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar örvænting og svekkelsi taka völdin

Við sátum nokkur og horfðum á fréttir þegar sagt var frá þessari rústun einbýlishúss á Álftanesinu.

Ekkert okkar taldi sig mundu hafa gripið til slíkra ráða.

Öll töldum við okkur þó hafa einhvern skilning á þeim tilfinningum, sem legið hafa að baki þessum örþrifaráðum.

Það er illa komið fyrir okkur.

Það er 17. júní.


mbl.is Bankinn fékk ekki lyklana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að vera vitur eftirá

Það er heldur dapurlegt að heyra frá hollenzkum yfirvöldum að ekkert hafi verið hægt að gera til að hefta framgang Icesave þar í landi. Í sinni einföldustu mynd lítur málið þannig út, að hafi verið raunverulegur vilji til að taka á málinu, þá hefði það verið gert.

Yfirlýsing á borð við þá að hollenzki seðlabankinn hafi lítið sem „ekkert beitt sér til að stöðva vöxt Icesave-reikninganna þar sem eftirlit með þeim og Landsbankanum heyrði undir FME“ fær ekki staðizt.

Þetta er einfalt dæmi um að vera vitur eftirá.

Hefðu Hollendingar raunverulega talið að hag sínum væri ógnað, á einn eða annan veg, hefðu þeir ekki hikað við að grípa til aðgerða. Annað er fyrirsláttur af ódýrustu gerð.


mbl.is Gátu ekki stöðvað Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sturlun forseta Alþingis

Það er í sjálfu sér ekki nema von að forseti Alþingis hálfsturlist og reki úr ræðustóli þingmann, sem var ekki á neinn hátt að hegða sér öðruvísi en gerzt hefur oftsinnis í þingsalnum.

Forsetinn ber þess merki að það er farið að taka á taugarnar að vera einn af forystusauðum ríkisstjórnar, sem er að missa endanlega stjórn á sjálfri sér og málaefnalista sínum. 

Það gerist lítið og það litla, sem gerist er ekkert nema tóm öfugmæli. Það er boðið upp á snilldarsamninga við Breta og Hollendinga, sem þeir skrifuðu sjálfir og ætlast síðan til að verði samþykktir óséðir af löggjafarsamkundunni. Fáheyrð kjör, en talin hin ákjósanlegustu af stjórnarliðum.

Er það nema von að forsetinn missi stjórn á sér.

 


mbl.is Óásættanleg framkoma forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðskuldaður heiður

Það er sérlega vel til fundið að stofna til listaverðlauna í nafni Errós.

Með þeim verður með þökkum haldið á lofti nafni þessa örláta listamanns, sem gefið hefur Reykjavíkurborg stóran hluta listsköpunar sinnar og er enn að.

Það var kominn tími til að viðurkenna í verki örlæti þessa eins hins fremsta listamanns, sem landið hefur alið.


mbl.is Ný verðlaun kennd við Erró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattahækkanir vinstri stjórnar, ja nú er ég hissa

Það var svo sem ekki við öðru að búast. Hugmyndafræðin er dæmigerð vinstri vandræði þegar kemur að því að styrkja stöðu ríkissjóðs. Í stað niðurskurðar og /eða hagræðinga er vaðið beint í atvinnulífið, svo burðugt sem það nú er, með stórfelldri hækkun álaga á launatengd gjöld.

Ríkisstjórn, sem tæki á vandanum af alvöru og með raunhæfum aðgerðum væri sennilega fyrirgefið margt, en þetta teymi ráðleysis, vandræða og uppgjafar á sér ekki viðreisnar von.

 


mbl.is Skattahækkanir úr ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu erlendir bankar

Það er ekki spurning um hvort, heldur hvenær, erlendir bankar taka að sér rekstur banka á Íslandi, eins eða fleiri.

Í fyrsta lagi hlýtur það að gerast því ekki getur það verið í forgangsröð ríkisstjórnarinnar að halda úti starfsemi ríkisbanka lengur en nauðsynlegt er. Íslendingar bjuggu nógu lengi við pólitískt rekna banka til að afþakka pent slíkan rekstur í framtíðinni. Nú má segja að ekki hafi tekizt burðuglega með einkarekstur bankanna, en verðum við ekki að gefa okkur það að svo lengi lærir sem lifir.

Í öðru lagi verður að hafa í huga að engir þeir aðilar, sem njóta trausts, hafa efnahagslega burði til að standa undir stofnun og rekstri banka af þeirri tegund og stærð, sem koma verður í rekstur. 

Í þriðja lagi, sennilega því sem mestu skiptir, verður að koma á laggirnar að nýju bankastarfsemi, sem stutt getur við eðlilega efnahags- og atvinnustarfsemi í landinu. Þá er ekki átt við bankastofnanir, sem hafa það að höfuðmarkmiði að standa í skuldabréfaviðskiptum hver við aðra eða selja starfsmönnum eigin hlutabréf til að halda uppi óraunhæfu verði bréfa. Um er að ræða stofnanir, sem hafa það að meginmarkmiði að halda uppi, og efla, eðlilega starfsemi fyrirtækja og annarra rekstraraðila með lánafyrirgreiðslu og eðlilegum stuðningi til lengri eða skemmri tíma.

Því miður er ekki að sjá að um neinn íslenzkan aðila sé að ræða, sem gæti staðið sig í slíku hlutverki; a.m.k. ekki sem stendur og líklega ekki í fyrirsjáanlegri framtíð.  


mbl.is Útibú erlendra móðurbanka?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nafni gefur sig ekki

Hafi einhver búizt við því að Gunnar I. Birgisson lyppaðist niður við eina ágjöf, þá hefur hann sannað í eitt skipti fyrir öll, hvernig sem fara kann að lokum, að sókn er bezta vörnin.

A fronte praecipitium, a tergo lupi - Framundan er þverhnípi, að baki vor eru úlfar.


mbl.is Falið að ræða við Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álfheiður Ingadóttir talar af viti!

Aldrei fór svo að ekki kæmi eitthvað af viti frá vinstri grænum. Þau miklu undur hafa nú gerzt.

Það verði engin ríkisábyrgð veitt fyrir eitt eða neitt sem ekki megi sjást“ sagði Álfheiður Ingadóttir um Icesave-samninginn og þann sjálfsagða hlut að efnahags- og skattanefnd Alþingis muni ekki samþykkja ríkisábyrgð vegna þessa risamáls nema hún fái öll gögn í hendur, að samningnum sjálfum meðtöldum. 

Þetta er í raun krafa, sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa gert frá því umræða hófst um samninginn eftir að sú glæsta afurð Svavars Gestssonar og Indriða H. Þorlákssonar fyrst sá dagsins ljós.

Nú er það bara spurningin hvernig fjármálaráðherra ætlar að koma máli þessu í gegnum þingið. Tveir af þingmönnum vinstri grænna hafa lýst því yfir að þau muni ekki styðja slíkt frumvarp, ráðherra heilbrigðismála og formaður þingflokksins. Þetta virðast vera skelfileg vandræði, sem flokkurinn er búinn að koma sér í.


mbl.is Ekki ríkisábyrgð á leynisamning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgzt með í barnaafmæli

Haldið var upp á sjö ára afmæli dótturdóttur minnar í dag með pompi og prakt og öllu því sem til heyrir afmælishaldi ungrar manneskju, sem finnst fátt, ef nokkuð, skemmtilegra en að fá afa og ömmur, frændur og frænkur í heimsókn til sín til að taka þátt í herlegheitunum og njóta þeirra.

Svona útundan okkur gátum við, helsjúkir áhugamenn um íslenzkan handbolta, gjóað augunum á sjónvarpsskjá og fylgzt með gengi íslenzka landsliðsins í handbolta.

Það var vissulega svekkjandi að ná ekki þessum tveimur stigum, sem þurfti að ná til að komast upp úr riðlinum á EM, ekki sízt fyrir að hafa tvisvar náð fimm marka forystu í seinni hálfleik.

Aldrei þessu vant er ég þó ekki jafn vonlítill um gang mála og raunin hefur verið þegar Íslandi hefur mistekizt að vinna krítískan leik. Í raun er ég hinn vonbezti um að þetta á eftir að ganga eftir og hef þá í huga að í dag vorum við án margra okkar reyndustu manna.

Þeir, sem voru næstum búnir að ná þessu fyrir okkur eiga greinilega framtíðina fyrir sér og þegar þeir ná saman við þá, sem voru fjarverandi í dag vegna meiðsla, kvíði ég engu. Hér er á ferðinni hörkulið, sem getur aðeins orðið betra. 


mbl.is Aftur gerðu Íslendingar og Norðmenn jafntefli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband