Verulega mikið betra

„[Staðan] er nokkuð góð frá MÍNUM bæjardyrum séð“ sagði ráðherra utanríkismála og segir ennfremur að um sé að ræða stöðu, sem sé verulega mikið betri en það, sem fyrir liggi í núverandi samningi.

Ráðherrann sér ástæðu til að leggja áherzlu á að þetta sé HANS skoðun. Með því er hann að gefa til kynna að ekki séu allir á sama máli. Ekki þarf hann að nefna nein nöfn, en ljóst er að fjármálaráðherra deilir ekki þessari skoðun með félaga sínum. Ekkert vildi hann heldur en að samningur félaga Svavars Gestssonar og Indriða Þorlákssonar verði að veruleika. Hér er ekki um neinar vangaveltur að ræða því fjármálaráðherrann hefur svarað fyrir sig sjálfur í sjónvarpsfréttum mbl.is. Þar kvaðst hann, aðspurður, „að sjálfsögðu, já“ ætla sér að greiða „samningi“ Svavars og Indriða atkvæði. 

Þar skiptir greinilega engu máli að á borðinu er tilboð, sem tekur gömlu hörmunginni mikið fram þó lélegt sé.


mbl.is Nokkuð góð staða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það nema von...

Já, er það nema von að allt hafi verið sett hér á hausinn.

Miðað við það, sem furstarnir á Milestone/Moderna/Sjóvá höfðust að í taumlausu brjálæði vanhugsaðra/óhugsaðra „fjárfestinga“, er ekki við miklu að búast. 

Það er himninum ljósara að þetta gat ekki gengið; sennilega ekki við beztu aðstæður óhefts lánsfjármagns.

Það er full ástæða til að efast um geðheilbrigði manna, sem haga sér eins og börn í sandkassaati, en telja sér og öðrum trú um að þeir stundi viðskipti; viðskipti, sem náðu til margra landa og slíks fjölda fyrirtækja að furstarnir vissu varla lengur hvað þau gerðu eða hvaða samninga þau hefðu gert hvert við annað.  

Við fréttir af yfirheyrzlum yfir þessum höfðingjum setur mann hljóðan. 


mbl.is Yfirheyrslur vegna Milestone
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáránleiki breytilegra vaxta

Í fyrradag skrifaði ég smá pistil um fáránleika breytilegra vaxta, en um þá varð mikið fjaðrafok og virtust menn ekki halda vatni, hvað þá sönsum yfir þessu fyrirbæri.

Menn virðast hafa áttað sig á að breytilegir vextir eru ekkert annað en happdrætti, sem ekki er annað hægt en að tapa á. 

Um þessar mundir eru grunnvextir víðast hvar á bilinu nálægt 0% - 2% og eiga ekkert annað eftir að fara en upp.

Það er alveg makalaust að lesa skrif, bloggfærslur og athugasemdir, vinstri sinna um þessar mundir, en þar er ofarlega á baugi einhvers konar furðusláttur yfir því að á þessu stigi málsins hafi verið boðin önnur vaxtakjör en áður. Síðan eru því gerðir skórnir að stjórnarandstaðan hafi ekki áttað sig á alvöru málsins og sitji uppi með tilboð Hollendinga og Breta, sem séu sýnu verri en hörmungin, sem áður bauðst. Þessu liði virðist sjálfsagt að taka gamla boðinu, sem þeir félagar Svavar Gestsson og Indriði Þorláksson sömdu um í umboði Steingríms J. Sigfússonar.

Sé þetta mál fært niður á einfalt og skiljanlegt plan, sem jafnvel vinstri menn ættu að geta skilið, þá er það nú einfaldlega stjórnarandstöðunni að þakka að umsömdum ofurkostum var ekki tekið. Það er stjórnarandstöðunni að þakka að reynt verður til hlítar að semja um betri kjör en áður voru í boði. Það er stjórnarandstöðunni að þakka að við verðum hugsanlega ekki sett á hausinn með fáránlegum samningum, hvað svo sem vinstri liðið lætur sér um það finnast. 

 


mbl.is Vilja 2,75% álag á vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vextir ekki allt

Menn virðast ekki átta sig á að það skiptir ekki höfuðmáli, þó vissulega hafi það sitt að segja, að breyta vaxtakjörum.

Í gær virtust menn ekki halda vatni vegna þess að á flug fóru fréttir um að til stæði að breyta vöxtum úr föstum í breytilega. Breytir í raun sára litlu, ef nokkru.

Breyta þarf þeim hugsunarhætti, sem felst í því að Íslendingar „skuldi“ Bretum og Hollendingum morð fjár vegna lána, sem þeir veittu sjálfum sér og rukka síðan Íslendinga um.

Verði eitthvað greitt, þá verði það til að flýta fyrir endurreisn efnahags landsins, ekki vegna „skulda“ við þessa óbilgjörnu þrjóta.

 


mbl.is Svar komið vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Markaðsráðandi

Ég ætla að leyfa mér að vitna í Jóhannes Jónsson, kenndan við Bónus, en árið 1991 lét hann hafa eftir sér í viðtali við Tímann um virkni frjáls markaðar að „[þ]að er afar óhollt í kapítalísku þjóðfélagi að eitt fyrirtæki verði svo stórt að það nái kannski 30-40% markaðshlutdeild. Það á sér hvergi hliðstæðu í nágrannalöndum okkar að eitt fyrirtæki ná slíkum tökum“.

Og áfram heldur Jóhannes: Það eru rosaleg völd fólgin í því að vera smásali. Náir þú góðum tökum á smásölumarkaði, þá nærð þú líka kerfisbundið tökum á ákveðnum iðnaði. Það er mjög hættulegt bæði framleiðendum og innflytjendum verði einn smásali mjög stór. Hann ræður þá ekki aðeins miklu um vöruval á markaðnum, heldur getur hann líka farið að framleiða verðbólgu í þjóðfélaginu.“

Svo mörg voru þau orð.

Jóhannes fór mikinn og hneykslaðist þegar samkeppnisyfirvöld felldu úrskurð sinn og fram kom að á landinu öllu hefði markaðshlutdeild Haga verið yfir 50%. Tölur hafa verið á floti um 50-60% markaðshlutdeild.

Mér er ekki kunnugt um að Jóhannes í Bónus hafi tjáð sig fjálglega um 30-40 prósentin uppá síðkastið. 


mbl.is Hagar ætla að áfrýja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fnykur

Ef um er að ræða tilboð „sem Íslendingar geta ekki hafnað“, þá er ljóst hvert Bretar og Hollendingar hafa sótt ráðgjöf um samningagerð.

Það eru ekki nema ein samtök, sem beita slíkum forsendum við samninga.

Það er ekki leiðum að líkjast.


mbl.is Undirbúa nýtt Icesave tilboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fara skal að lögum

Það hefur ekkert að segja hvort slitnað hafi upp úr viðræðum við Breta og Hollendinga eða ekki. Lögum samkvæmt skal halda þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-lagaklúður ríkisstjórnarinnar 6. marz.

Engu máli skiptir heldur hvort skýrsla rannsóknarnefndarinnar verður komin út fyrir þann dag. Sú skýrsla kemur út þegar hún kemur út.

Þjóðin vill, og þarf að segja hug sinn til samningsins, sem gerður var við Breta og Hollendinga. Hún gerir það ekki með formlegum hætti nema í atkvæðagreiðslu.

Það er einfaldlega forkastanlegt að þessi, um margt furðulega, ríkisstjórn skuli vera að velta því fyrir sér að fresta, eða slá af, þjóðaratkvæðagreiðslu um eitt erfiðasta mál, sem verið hefur til umræðu frá stofnun lýðveldisins.

 


mbl.is Óbreytt áform um kosningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sei, sei

Það getur ekki verið mikil ástæða til þess að missa sig í fögnuði yfir því að Bretum skuli þóknast að vilja rýmka aðeins til með vaxtagreiðslur af lánum, sem stjórnvöld þar í landi greiddu eigin þegnum að eigin frumkvæði. Lánum, sem þeir veittu sjálfum sér.

Því hefur verið haldið fram með öflugum rökum að ríkissjóður Íslands skuldi hvorki Bretum né Hollendingum eina aukatekna krónu, hvað þá vexti. 

Síðast í dag er greint frá því að norski innistæðutryggingasjóðurinn, sem um flest er eins upp settur og sá íslenzki, telji sig ekki baktryggðan af norska ríkinu. Vísar forstjóri sjóðsins til ákvæða EES-samningsins og bendir á að bætur umfram eignir sjóðsins kæmu ekki til greina.

Hvernig væri nú að menn færu að taka mið af einföldum staðreyndum og lýstu því einfaldlega yfir að ekki stæði til að greiða það sem enginn fótur væri fyrir.


mbl.is Bretar fallast á eftirgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ýtt undir atvinnurekstur

Þau vantaði ekki loforðin um að slegin yrði skjaldborg um heimilin í landinu og séð til þess að atvinnutæki landsins, fyrirtækin, yrðu aðnjótandi hagstæðs rekstrarumhverfis.

Það hefur heldur ekki vantað loforð og yfirlýsingar um að fjöldi starfa væri um það bil að verða til, jafnvel þúsundir. Lítið hefur sézt af nýjum störfum, sem orðið hafa til fyrir atbeina ríkisvaldsins, enda varla við því að búast. Það er ekki ríkisins að sjá til þess að til verði ný störf. Þess hlutverk er að sjá um að þokkalegur grundvöllur sé til staðar fyrir atvinnulífið og vera svo ekki að flækjast fyrir meira en góðu hófi gegnir.

Framtak athafnamanna við að koma á fót einkareknu sjúkrahúsi á Miðnesheiðinni er lofsvert, hvernig sem á það er litið.

Þá er bara að vona að þetta verði látið í friði og leyft að þróast, en verði ekki fyrir barðinu á ofursósíalistum á borð við núverandi ráðherra heilbrigðismála.

 


mbl.is Framkvæmdir við einkasjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukin óvissa

Auðvitað eykur það á óvissu um framvindu í efnahagsmálum að enn á ný skuli setzt að borðum til að leitast við að finna lausn á Icesave-ævintýri furstanna í Landsbankanum. Enn á ný er verið að freista þess að ná fram viðunandi lausn í þessu mesta viðskiptavandamáli, sem þjóðin hefur glímt við frá upphafi.

Réttara væri þó að segja að loks væri þess freistað að finna viðunandi laus.

Hálfkák og afsamningar þeirra félaga Svavars Gestssonar og Indriða H. Þorlákssonar eru ekki þess virði að teljast með sem tilraunir við að ná fram mannsæmandi lausn.


mbl.is Enn að skiptast á hugmyndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband