Viðskiptavinir í vondu skapi

Ekki dreg ég í efa þau orð Friðberts Traustasonar að viðskiptavinir bankanna „séu oft í vondu skapi þegar þeir komi inn í bankann“. Lái þeim það hver sem vill.

Það er nú til of mikils ætlazt að þessir viðskiptavinir gangi um með sælubros á vör í þeim stofnunum, sem hafa haft af þeim mikla fjármuni með fölskum loforðum um öryggi í viðskiptum. Ég hlýt að taka undir með þeim, sem um þessi vandamál bankastarfsmanna hafa fjallað og benda á að í mörgum tilvikum hefði verið rík ástæða til að veita þeim áfallahjálp, sem urðu fyrir miklu tjóni og töpuðu gróflega, öryrkjum og eldri borgurum. 

 


mbl.is Bankamenn fá áfallahjálp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fagnaðarefni hverra?

Það sem ég átta mig ekki alveg á er hvernig í ósköpunum er hægt að tala um þessa samningsgerð sem fagnaðarefni.

Hækkandi verðbólga, lækkandi kaupmáttur launa, verri skuldastaða heimila, vaxandi atvinnuleysi, atvinnugreinar við það, hver af annarri, að leggja upp laupana, minnkandi opinber atvinnuþátttaka, bankarnir óstarfhæfir. Þjóð á skuldaklafa til áratuga.

Hverju er ástæða til að fagna?

 


mbl.is Sáttmáli undirritaður á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blásaklaus

Sé það rétt hjá Hannesi Smárasyni að hann hafi engin lög brotið og í hvívetna lagt sig fram um að fylgja lögum og reglum, sem viðskiptalífinu hafa verið sett, hefur hann ekkert að óttast.

Það ætti því að vera allsendis óþarfi að draga í efa lögmæti húsleitar, sem gerð var hjá honum. Hvað þá að áfrýja til Hæstaréttar niðurstöðu Héraðsdóms um lögmæti þessa gjörnings.

Sé Hannes blásaklaus, þarf hann ekki á úrskurði Hæstaréttar að halda til að fullvissa sig og aðra. Honum væri mestur greiði gerður með því að láta dómstóla fara sínar leiðir og komast að hinni einu og sönnu niðurstöðu, sem samkvæmt trú Hannesar getur ekki orðið önnur en vottorð um sakleysi og hreinleika.


mbl.is Hannes segist ekki hafa brotið lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norræna velferðarmódelið?

Væri það ekki fyrir aðgerðir ríkisstjórnarinnar, hinna vinstri sinnuðu velferðarflokka, flokka fólksins, flokka hins norræna velferðarmódels, hefði vísitala neyzluverðs líklega lækkað á milli mánaða.

Það annarlega í þessari þróun er að nú er það húsnæðisþátturinn, sem heldur aðeins aftur af hraðanum í vísitöluhækkuninni, öfugt við það sem var fyrir fáeinum misserum. Ekki er við öðru að búast miðað við þær miklu umframbirgðir af íbúðarhúsnæði, sem um er að ræða á markaði í dag.

Dapurlegt er til þess að vita að þessi hækkun á vísitölu neyzluverðs heldur áfram að kynda undir verðtryggðum skuldbindingum. Ekki beint það sem skuldarar þurfa á að halda í dag. Er sennilega hluti af skjaldborginni, sem slá átti um heimilin í landinu. Sá gamli sannleikur að fæst orð hafa minnsta ábyrgð á sannarlega við í dag. Loforðin um skjaldborgirnar hefði líklega átt að láta ógefin. Fyrir þeim er greinilega engin innistæða. 


mbl.is Verðbólga eykst á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í einhvern menntaskóla

Frúin er ekki sátt við að barnið komist bara inn í „einhvern menntaskóla... við vitum að þeir eru jafn misjafnir og þeir eru margir“.

Ja hérna. Ég finn sárlega til með stúlkubarninu, sem þó náði þriðja valkostinum, sem var Menntaskólinn við Sund. Og hún, sem kemur úr Hagaskóla.

Við þessa ofuræstu móður get ég bara sagt eitt: Slappaðu af kona góð. Afkvæmið hefur vafalaust fengið það, sem því bar. 


mbl.is Foreldrar bálreiðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðfararhæfi íslenzkra eigna og hagsmuna

Það virðist gegnumgangandi að þegar lögmenn eru fengnir til að gefa álit sitt þá finna þeir oftast nær þær hliðar á málinu, sem eru umbjóðanda hans hugleiknar. Umbjóðandinn fær að heyra það sem hann vill heyra. Við þessa júridísku leikfimi er, sjálfsagt, lítið að athuga því yfirleitt eru fleiri en tvær hliðar á hverju máli. Það fer allt eftir því hvaða forsendur menn gefa sér í upphafi og hanga svo í.

Einu hjó ég eftir í frétt af álitsgerð Jakobs R. Möllers, sem ég held að fái engan veginn staðizt og þarf ekki  lögfræðilega aðferðafræði til að komast að þeirri niðurstöðu. Þar er um að ræða aðfarahæfi eigna íslenzka ríkisins erlendis. Þegar lögum um vernd gegn hryðjuverkastarfsemi var beitt gegn íslenzkum aðila 8. október sl. var ekki hugsað um aðfararhæfi, sanngirni, svo ekki sé nefnd vinátta milli þjóða. Þessum gjörningi Breta var ekki eingöngu beitt gegn Landsbankanum, heldur með beinum orðum gegn ríkisstjórn Íslands og íslenzkum stjórnvöldum. Íslenzkar eignir voru frystar og voru áfram geymdar í frosti þó íslenzka ríkið væri í raun orðið eini gagnaðilinn.

Þegar kemur að reglum um aðfararhæfi og sanngirni verður það stærðarmunur, sem skiptir máli. Við erum einfaldlega miklu minni og auðveld bráð, hvað sem líður alþjóðalögum. Íslendingar geta hrópað sig hása yfir lögbrotum og ósanngirni. Það hlustar bara enginn og enginn heyrir. 

 

 


mbl.is Hagstæð ákvæði Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bezta lausn úr því sem komið var

Úr því sem komið var má telja það viðunandi lausn að 2. maður á lista Sjálfstæðisflokksins taki við starfi bæjarstjóra af Gunnari I. Birgissyni.

Ég á þó ekki von á því að Kópavogsbúar gleymi því í bráð að það var Gunnar, sem var í forsvari fyrir þeirri mestu sókn, sem Kópavogur hefur séð. Gerði Kópavog að alvöru bæ.

Eins býst ég við að Kópavogsbúar hafi í huga aðför Samfylkingarinnar að farsælum bæjarstjóra þegar kemur að sveitarstjórnarkosningum næsta vor. 


mbl.is Samstarfið heldur í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir bera ábyrgð?

Það er ekki hægt að gera hlutina miklu skýrari en Tryggvi Þór Herbertsson gerir í viðtali við mbl.is. Jafnframt segir hann að leiðin hafi verið rudd þegar mönnum var stillt upp við vegg af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Samningar skyldu gerðir við Breta og Hollendinga, hvað sem það kostaði.

Nú er komið í ljós að samninganefnd undir forystu Svavars Gestssonar og Indriða H. Þorlákssonar hefur tekið þetta aðeins of bókstaflega. Samningur var gerður, sem ekki er nokkur leið að standa við og því er ekki önnur leið fær en að Alþingi hafni þeirri ríkisábyrgð, sem farið er fram á að verði veitt.

Í fréttum í kvöld kom fram hjá fjármálaráðherra að honum þætti furðulegt ef Sjálfstæðismenn „hlaupa undan ábyrgð“.

Það má ekki gleymast að það voru ekki Sjálfstæðismenn, sem gerðu þennan samning við Breta og Hollendinga. Steingrímur má heldur ekki gleyma því, að ef hann vantar atkvæði í þinginu, væri honum nær að líta til eigin liðsmanna, sem standa með honum að ríkisstjórninni, en hafa lýst því yfir að þeir muni segja NEI. 


mbl.is Icesave kostar minnst 300 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í umsjón óstarfhæfrar stjórnar

Sú staðreynd að eignir Landsbankans dugi ekki fyrir Icesave-skuldbindingum er ekki frétt. Þetta hefur verið vitað síðan fljótlega eftir að samningar voru gerðir sem gerðu ráð fyrir að setja í pant eigur íslenzka ríkisins, íslenzku þjóðarinnar.

Það, sem er síðan að koma betur og betur í ljós er að ríkisstjórnin hefur enga burði til að ráða við þetta tröllaukna vandamál. 

Hún er klofin þvers og kruss. 

Ekki aðeins í Icesave-málinu, heldur, og miklu fremur, í öllu, sem við kemur ESB, viðræðum og hugsanlegri umsókn.

Á erfiðum tímum verður að vera hægt að treysta á samstíga og samhenta ríkisstjórn. Því er ekki að heilsa þessa dagana.

 


mbl.is Eignir duga ekki fyrir Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frí frá hælbítum

„Öll samskipti við FME voru lögð fram í stjórninni, við sendum FME tvö eða þrjú bréf sem öll voru lögð fram í stjórninni. Ég hitti þá ásamt framkvæmdastjóra og fjármálastjóra bæjarins á tveimur fundum í nóvember eða desember og öðrum í maí og stjórninni var eðlilega gert grein fyrir því“ segir Gunnar I. Birgisson í viðtali við Morgunblaðið.

Þessi voru inngangsorð að annarri bloggfærslu. Gunnar I. Birgisson bætir því síðan við að ekkert hafi verið gert nema til að vernda hagsmuni lífeyrissjóðsins.

Með ákvörðun sinni um að víkja meðan á lögreglurannsókn stendur er bæjarstjórinn að taka ákvörðun, sem telja verður hina einu réttu í stöðunni.

Hinir frómu kollegar hans úr Samfylkingunni, sem sæti eiga í bæjarstjórn, eru skyndilega sem af fjöllum komnir varðandi framvindu í málefnum LSK. Að ekki sé nú talað um blessaða sakleysingjana í Framsóknarflokknum að meðtöldum formanni bæjarráðs, sem einnig á sæti í stjórn lífeyrissjóðsins.

 

 

 


mbl.is Gunnar fer í leyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband