Ekki hans dagur

Skelfing er þetta nú dapurleg frammistaða hjá varaformanni Samfylkingarinnar.

„Dagur kýs að taka þjóðhagsspána og yfirfæra hana á Reykjavíkurborg og leggja allt út á versta veg. Við erum búin að endurskoða fjárhagsáætlun okkar miðað við ástandið og það bendir ekkert til annars en að hún standi" er haft eftir formanni borgarráðs, Óskari Bergssyni.

Það er eitt að vera í fríi frá störfum í borgarstjórn, en það getur ekki talizt ósanngjarnt að blessaður borgarfulltrúinn setji sig inn í grundvallaratriði í rekstri borgarinnar þegar honum hentar að koma aftur til starfa. 


mbl.is Fjárhagsáætlunin var endurskoðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar fer, hvað með Flosa og Ómar?

Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri og formaður stjórnar LSK hefur einn axlað ábyrgð á þessum 24% af eignum sjóðsins, sem Kópavogsbær tók að láni. Tímar voru viðsjárverðir, bönkum var ekki treystandi og koma þurfti fjármunum lífeyrissjóðsins í örugga ávöxtun.

Endurskoðandi sjóðsins er meðvitaður um stöðu mála og honum bar að gera meira en segjast vera „hræddur“.

Þá kemur að heiðursmönnunum Flosa og Ómari, stjórnarmönnum LSK, sem voru ekki síður upplýstir um gang og stöðu mála en stjórnarformaðurinn. Hafa þeir engum mórölskum skyldum að gegna? Hvers vegna sitja þeir ennþá í stjórn bæjarfélagsins, eins og ekkert hafi gerzt?


mbl.is „Og þá erum við í vanda"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og það er til að.....

Nú bíða menn spenntir eftir því að heyra til hvers á að nýta þessa fjármuni.

Ekki dreg ég í efa að með þessu frumvarpi hafi fylgt einhvers konar greinargerð, þar sem fram kemur til hvers á að nýta lánið. Meðan sauðsvörtum almúganum hefur ekki verið gerð grein fyrir hvað á að gera við þessa peninga, þá leyfi ég mér að stórefast um andlegt ástand meirihluta efnahags- og skattanefndar. 


mbl.is 950 milljarðar að láni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérfræðingar íslenzkra banka

Í heilsíðuauglýsingu eins ríkisbankanna í viðskiptakálfi Morgunblaðsins sl. fimmtudag er bent á að „[á] tímum sviptinga [sé] mikilvægt að eignasöfn séu vöktuð af sérfræðingum“.

Þessi heilræði hefðu bankarnir átt að hafa í huga áður en til sviptinganna kom. Hefðu þeir og sérfræðingar þeirra staðið vaktina, er allt eins líklegt að sviptingarnar væru nú óverulegar; jafnvel vart mælanlegar. 

 


Meinlætalifnaður eða Móðuharðindi

Hækkun á áfengisgjaldi og tóbaksgjaldi kemur lítið við þann, er þennan pistil skrifar, enda notkun þeirra neyzluliða í slíku lágmarki að jaðrar við meinlætalifnað.

Það, sem meira máli skiptir eru þau fyrirhuguðu gjöld og álögur, sem varða nauðsynjar daglegs lífs eins og benzíngjald og olíugjald. Gjaldtegundir, er varða fólk á leið til og frá vinnu eða ferjandi börn í leikskóla, grunnskóla og til tómstundaiðkana. Verði ekki búið að skattleggja tómstundaiðkanir út fyrir kaupgetu venjulegra heimila.

Miðað við álagningargleði fjármálaráðherra er öruggt að óbeinir skattar verða hækkaðir út og suður, sama hvaða áhrif slíkar hækkanir kunna að hafa á verðbólguþróun.

Málum verður einfaldlega þannig komið að það verður ekki lengur líft hér á klakanaum. Meinlætalifnaður verður ekki lengur það sem lífsbaráttan snýst um í álagningargleði vinstri stjórnarinnar. Við sjáum fram á 21. aldar útgáfu af Móðuharðindum.


mbl.is Boðar auknar álögur á áfengi og tóbak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið klassíska mynstur fjármálafurstanna

Hvað hefur það tekið langan tíma fyrir Íslenska Afþreyingu, hið dæmigerða afkvæmi Baugsveldisins, sem var að keyra sig í þrot?

Svarið er: Alltof langan. Tími hefur gefizt til að tefla hina klassísku refskák í anda FL Group, Sterling og Milestone.

Fyrirtæki eru keypt, seld, þeim skipt, skiptu hlutirnir endurseldir uppblásnir af óefnislegum eignaliðum unz hægt er að safna sem mestu af skuldum saman í eina rekstrareiningu og hún sett í gjaldþrot.

 


mbl.is Íslensk afþreying gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brotthlaupnir þingmenn

Ég hef ítrekað sagt á þessum vettvangi að vinstri grænir verða að átta sig á, hvað felst í því að mynda ríkisstjórn.

Sé um að ræða samsteypustjórn er galdurinn sá að flokkarnir, tveir eða fleiri, vinni saman að settum markmiðum. 

Það má þó ekki gleyma því, sem virðist hafa gleymst í þessu tilviki, en það er að flokkarnir hangi innbyrðis sjálfir saman.

Það gengur ekki að mæta fúll í viðtal við Stjórnarráðið og kenna Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum um vandræðin, sem hljótast af því að Ögmundur Jónasson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir neita að fylgja eigin formanni.

Ekki burðug stjórn það, eða hvað?


mbl.is Strandi Icesave, strandar allt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð byrjun

Hver er ekki sammála Sigurði Líndal um að ekki sé þetta „góð byrjun á inngöngu í Evrópusambandið ef þetta sé viðmót nágrannanna“. Vinir okkar, hinar Norðurlandaþjóðirnar, taka undir ósómann með Bretum, Hollendingum og Þjóðverjum.

Ef það á að berja okkur til hlýðni, þá væri sennilega meiri manndómur í því að vera bæði blankur og berrassaður hér norður í Dumbshafi. Lítið virðumst við eiga sameiginlegt með öðrum þjóðum Evrópu ef þær ætla að byrja samevrópska samvinnu við Íslendinga með efnahagslegu ofbeldi.

 

 


mbl.is Sigruð þjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grindavík á Mars

Eigandi ættir að rekja til Grindavíkur hefur mér alltaf fundizt nóg að Grindavík væri bara til á Reykjanesskaga; þarna suður með sjó.

Nú, þegar ég les frétt um að Grindavík sé líka til á plánetunni Mars, vex hróður þessa draumastaðar bernskunnar um mörg margfeldi, sé hægt að nota slíkt orðalag við mælingar á ánægju með að heyra af heimabæ afa og ömmu úti í himingeimnum.

Sú Grindavík, sem ég þekkti, og þekki, er samt enginn gígur, heldur geymsla minninga um veiðar af bryggjum, kartöflugarða og saltfiskverkun. 

Mín Grindavík er miklu merkilegri Grindavík en sú, sem varð til árið 2006 á fjórðu reikistjörnu frá sólu, 78 milljón kílómetra frá jörðu þegar þessar tvær plánetur eru næst hvor annarri skv. upplýsingum á vísindavefnum.


mbl.is Grindavík á Mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Goðsögn horfin

Það var einhvern veginn þannig að ég lærði aldrei að meta söngvarann Michael Jackson, en á heimili okkar var ekki hjá því komizt að vera vel meðvitaður um fyrirferðarmikla tilvist hans. Hann var mikils metinn, svo ekki sé meira sagt, af þeim hinum yngri.

Einsog stundum vill verða með þá, sem vaxa í þær hæðir, sem Jackson gerði, verður tilveran erfið í sífelldum eltingaleik við aðdáun fjöldans og sjálfs sín. Það er hvorki einfalt, né auðvelt, að standa undir væntingum um eilíf afrek. 

Umdeildur snillingur horfinn á vit feðra sinna.


mbl.is Michael Jackson er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband