12.7.2009
Þurfti sérlög?
Það er í raun ótrúlegt að eyða þurfi tíma í að setja sérlög um sjálfsagðan rétt fyrrverandi starfsmanna SPRON að fá greidd laun innan uppsagnarfrests. Ekki hefur þessi töf verið til þess fallin að gera þessum fyrrverandi starfsmönnum lífið léttara í óvissu og við erfiðar aðstæður.
Slitastjórn sýndi ótrúlegt þverlyndi og ósanngirni með því að neita að greiða launin og gerði það þrátt fyrir að Viðskiptanefnd hafi leitað álits bærra aðila, réttarfarsnefndar og viðskiptaráðuneytis, sem mátu stöðuna þannig að ekki skorti heimildir til að greiða launin. Það eina, sem þurfti að gera var að viðurkenna launakröfurnar og ganga frá öðrum tiltölulega einföldum formsatriðum.
![]() |
Lög um laun starfsmanna Spron |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimssýn, Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum hefur kynnt helztu ástæður fyrir höfnun aðildar að Evrópusambandinu.
Fyrir okkur, sem höfnum þessari leið til óláns, segja þessar greinar allt, sem segja þarf um hugveilu Samfylkingarinnar og villu þeirra annarra, sem telja að við eigum eitthvert erindi í ofurveldið.
Ég ætla að birta þessar tólf greinar. Hér er grein nr. tvö.
Nýtt stórríki
Seinustu sex áratugi hefur ESB þróazt hratt og fengið öll helztu einkenni nýs stórríkis, sem stjórnað er af forseta og ríkisstjórn, þingi og æðsta dómstól og hefur sameiginlega utanríkisstefnu og fiskveiðilögsögu, landamæraeftirlit, stjórnarskrá, fána og þjóðsöng og stefnir að einum gjaldmiðli.
Ekkert bendir til þess að þessi þróun sé á enda runnin.
Meginmarkmiðið með framsali aðildarríkjanna á mikilvægustu þáttum fullveldis síns til miðstjórnarveldisins í Brussel er að byggja upp nýtt risaveldi, sem þjónar innri þörfum Sambandsins, þ.e. þeirra hagsmuna og viðmiða, sem þar eru ríkjandi. Réttarstaða aðildarríkjanna verður hliðstæð fylkjunum í Bandaríkjum Ameríku, sem hafa sjálfstjórn í vissum málaflokkum, en búa við skert sjálfstæði og sterkt alríkisvald.
11.7.2009
Að sjálfsögðu
Guð láti gott á vita.
Það var ekki seinna vænna að alvöru fótboltalið léti að sér kveða þarna í Vesturbænum.
Framtíðin er ráðin.
![]() |
Valssigur á KR-velli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.7.2009
Landsbankinn og loforðin
Heldur lögfræðingurinn [...] því fram að viðskiptin hafi verið svik þar sem fjárfestum hafi verið lofaður arður sem aldrei hafi verið hægt að standa undir.
Ef þetta eru rök, sem halda vatni og vindum, þá er spurning hvað segja má um þá, sem áttu fjármuni í peningamarkaðssjóðum Landsbankans.
Á Spáni voru innstæðueigendur að taka, vitandi vits, áhættu, sem var langt umfram venjuleg viðskipti, sem einstaklingar eiga við banka í formi innstæðna. Í gangi var, í raun, fjárhættuspil, sem viðskiptavinir LÍ tóku glaðir þátt í, enda var búizt við miklum hagnaði. Þessum viðskiptavinum var áhættan ljós, eða hefði átt að vera hún ljós, en þeir tóku engu að síður þátt.
Á Íslandi var, hins vegar, um að ræða reikninga með hóflegri ávöxtun, í raun tilbrigði við venjulega innstæðureikninga. Þessir reikningar voru, í síbylju, kynntir sem það öruggasta af öllu öruggu af starfsmönnum bankans. Ekki var talin ástæða að draga það í efa, enda áttu fjárfestingaleiðir peningamarkaðssjóðanna að vera gulli betri.
Þeim, sem finnst sem réttlætið hafi náð fram að ganga á Spáni, ættu að hugsa til þeirra, sem töpuðu sparifé í öruggum reikningum á Íslandi.
![]() |
Bankinn fær ekki eignirnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.7.2009
Hvers virði er frelsið?
Það getur vel verið að ástæða til þess að fram fari þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið vegna þess að hér verður um að ræða mjög dýrt viðræðuferli.
Það er þó ekki aðalatriði hvort þessar viðræður verða kostnaðarsamar og þá, hve mikill kostnaðurinn verður, eða getur orðið.
Það, sem raunverulega skiptir máli er hvort þjóðin vill, yfirhöfuð, að þessar viðræður verði hafnar.
Ef það skiptir ekki máli, hvort við viljum láta ofurselja okkur yfirþjóðlegu valdi fyrir stjórnlausa þráhyggju eins stjórnmálaflokks, þá veit ég ekki hvað skiptir máli.
Það viljum við fá að greiða atkvæði um.
![]() |
Ekki rætt um kostnað við ESB-aðildarviðræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.7.2009
Annus horribilis
Það er eins og allt verði óláni Íslands að vopni þetta árið.
Það er vélað um sjálfstæði landsins á Alþingi af aðilum, sem virðast til þess eins líklegir að varpa því fyrir róða með vanhugsuðu daðri við Brussel-veldið.
Það er vélað um efnahagslegt sjálfstæði landsins af aðilum, sem hvorki virðast hæfir til að leggja saman tvo og tvo, né gera sér grein fyrir hvað það hefur í för með sér að gera samninga, sem ekki er nokkur glæta er í.
Er það nema von að virtur hæstaréttarlögmaður birti greinar í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu á sama degi þar sem hann spyr þeirrar ógnvænlegu spurningar [e]r þetta örugglega rétt reiknað? og kemst að þeirri niðurstöðu að útreikningarnir hafi verið svo illa unnir, að dæmið gangi ekki upp.
Svo brennur á Þingvöllum.
![]() |
Ekkert stendur eftir í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimssýn, Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum hefur kynnt helztu ástæður fyrir höfnun aðildar að Evrópusambandinu.
Fyrir okkur, sem höfnum þessari leið til óláns, segja þessar greinar allt, sem segja þarf um hugveilu Samfylkingarinnar og villu þeirra annarra, sem telja að við eigum eitthvert erindi í ofurveldið.
Ég ætla að birta þessar tólf greinar. Hér er sú fyrsta.
Fullveldisframsal.
Með aðild að ESB færist vald yfir veigamiklum þáttum fullveldis okkar til Brussel. Dæmi:
- Yfirráð yfir 200 mílna fiskveiðilögsögu.
- Rétturinn til að gera fiskveiðisamninga við önnur ríki.
- Rétturinn til að gera viðskiptasamninga við önnur ríki.
- Rétturinn til að afnema tolla eða leggja á tolla.
- Æðsta dómsvald til ESB-dómstólsins, o.s.frv.
10.7.2009
Steingrímur J. - maður staðfestunnar?
Eitt sinn stóð ég í þeirri trú að Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar, græns framboðs, væri maður trúr sannfæringu sinni, hver sem sú sannfæring kynni að vera.
Það var yfirlýst stefna vinstri grænna að ekki bæri að stefna á aðild að Evrópusambandinu. Þessu héldu forystumenn flokksins og frambjóðendur fram fyrir síðustu kosningar. Þetta virtist vera sannfæring Steingríms J. og félaga hans. Því var, í raun, lofað að ekki yrði gengið til samninga.
Þá kom að því að aðild bauðst að ríkisstjórn og hver fær staðizt slíkt gylliboð. Nú hafa hlutirnir þróazt. Þeir hafa þróazt svo harkalega að þessi yfirlýsti stuðningsmaður gegnsæis í opinberri stjórnsýslu beitir sér fyrir því að einn af hans eigin þingmönnum er beinlínis gerður brottrækur af Alþingi fyrir að hafa aðra skoðun á gangi mála en Steingrímur J.
Ég átti tal við einn fyrrverandi stuðningsmann vinstri grænna í dag. Hann gekk svo langt að beita joðinu, sem kemur á eftir Steingrími, á borð við fyrsta staf í nafni þess, er þáði 30 silfurpeninga fyrir næstum 2000 árum síðan.
![]() |
Erfitt mál fyrir VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2009
Hver má hafa skoðun?
Það er greinilegt að sjálfstæðar skoðanir eru ekki fyrir hvern sem er hjá vinstri grænum.
Formaður þingflokksins, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, má greinilega hafa skoðanir á því, sem henni sýnist, og enginn segir neitt, en nýr þingmaður úr Dölunum má ekki taka afstöðu til aðildarumræðna að ESB nema vera laminn til hlýðni.
Ráðherra heilbrigðismála, Ögmundur Jónasson, má greinilega hafa skoðanir á því, sem honum sýnist, og enginn segir neitt við því, en nýi þingmaðurinn úr Dölunum á ekki annarra kosta völ en snúa sér að heyskap.
Hefði þetta gerzt annars staðar, væru nú umræður á fullu hjá vinstri grænum um jóna og séra jóna.
![]() |
Ásmundur farinn í heyskap |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2009
Af flokki gegnsæis
Það er ekki oft sem þingmenn sjá ástæðu til að lýsa því opinberlega yfir að þeir ætli að fara eftir einhverju öðru en skipunum flokksforystunnar og eru flengdir fyrir.
Greinilega hefur þótt ástæða til að taka þetta fram sérstaklega þegar ekki var um að ræða eitt af prinsippmálum flokks vinstri grænna. Það er þingmönnum flokksins greinilega ekki til framdráttar, en hvað hefst út úr því, og það hjá flokki hreinleika og gegnsæis?
Menn komast í heyskap.
![]() |
Hefði þýtt stjórnarslit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)