2.7.2009
Dýrar krónur, stórir milljarðar
Menn geta orðað afleiðingar sölu ríkisbankanna hvernig sem þeir vilja og komizt að orði eins og fjármálaráðherrann, Steingrímur J. Sigfússon, að andvirði sölu Landsbankans sé dýrustu krónur frá upphafi vega.
Eins hefur verið lamin til óbóta frásögnin um hvernig allt væri öðruvísi ef stofnuð hefðu verið dótturfélög í Bretlandi, en ekki látið nægja að vinna frá útibúum Landsbankans. Þetta er dagsatt og vitað af öllum.
Þá er hamrað á því að bankarnir hafi fullvissað viðskiptavini sína um að allt væri í bezta lagi og ekkert væri að óttast. Þetta er líka dagsatt og gerðist bæði hér heima sem erlendis.
Málið snýst bara ekki nema að litlu leyti um gamlar syndir og gömul afglöp. Á þessum syndum og afglöpum verður, væntanlega, tekið á viðeigandi vettvangi. Málið snýst um það, hvernig á að standa að því að komast út úr ógöngunum, sem fjármálafurstarnir komu landinu og þjóðinni í. Málið snýst um það, hvort fara beri eftir þeim skelfilega lélegu samningum, sem þeir félagar Svavar Gestsson og Indriði H. Þorláksson gerðu við Breta og Hollendinga.
Þar er um að ræða stærstu og dýrustu milljarðana.
![]() |
Dýrustu milljarðar Íslandssögunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.7.2009
Er nokkur hissa?
Það er væntanlega enginn hissa á því að 60% landsmanna séu mótfallnir þessu ótrúlega samkomulagi þeirra Svavars Gestssonar og Indriða H. Þorlákssonar, sem Samfylkingin og Vinstri hreyfingin, grænt framboð hafa tekið að sér færa í lög með setningu ríkisábyrgðar.
Það, sem gerir þó útslagið með forundran flestra er að foringjar vinstri flokkanna virðast raunverulega trúa því að þarna hafi verið vel samið.
Fjármálaráðherra hélt því fram í gær að lán Norðurlandanna væru pólitísk lán og þess vegna væru þau svona hagstæð. Norðurlandalánin eru langt frá því að vera hagstæð, 2,75% ofaná breytilega grunnvexti, sem standa í dag í 1,08%. Þau eru þó skömminni skárri en 5,55% hörmungin, sem Svavar og Indriði sömdu um.
Það, sem undrar mig er að ekki skuli nema 60% þjóðarinnar vera andstæð. Það hlýtur að breytast.
![]() |
Meirihluti mótfallinn Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.7.2009
Á Kanadadegi
Það fer vel á því að ný flugvél Landhelgisgæslunnar komi til Íslands frá Kanada á þjóðhátíðardegi vina okkar í vestri.
Til hamingju og gangi okkur allt í haginn.
![]() |
TF-SIF komin til landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.7.2009
Hvílíkir skilmálar
Þá segir að skilmálar lánanna séu þó aðlagaðir að þeim sérstöku aðstæðum sem leitt hafi til lántökunnar.
Ég held það megi segja að þetta sé einhver klaufalegast orðaða álitsgerð, sem sézt hefur um langa hríð.
Okurvextir á lán til ríkis, sem í raun hefur ekki efni á að taka slíkt lán. Lán til ríkis, sem aðstæðum samkvæmt hefði átt að njóta sérstakra kjara við töku lánsins. 1% vextir hefðu verið meira en nóg til að fullnægja kröfu um vexti af nauðungarláni. Það er hvergi að finna dæmi um slíka ógnarvexti í milliríkjalánum, sem Íslandi er ætlað að greiða.
![]() |
Skilmálar sambærilegir við það sem tíðkast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Við setningu og skipan gerðardóms er venjan sú að báðir aðilar samþykki valdsvið dómsins og komi sér saman um hvernig rekstri skuli háttað fyrir slíkum dómi.
Niðurstaða sjálfskipaðs gerðardóms var, þegar Ísland taldi sig ekki reiðubúið til að taka þátt í störfum hans án frekari tíma og undirbúnings:
Gáfu [hinir fulltrúarnir] samdóma álit eftir rúmlega sólarhringsskoðun um að íslenska ríkinu bæri að ábyrgjast greiðslu lágmarkstrygginga samkvæmt tilskipuninni dygðu eignir Tryggingarsjóðsins ekki til.
Þannig er hagað réttlætinu þegar ekki gefst tími til að huga að framgangi þess.
![]() |
Árni átti í vök að verjast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.6.2009
Meira af lífeyrissjóðum, meira af LSK
Nú er svo komið að heiðursmennirnir framsóknarmaðurinn Ómar Stefánsson og samfylkingarmaðurinn Flosi Eiríksson vilja ekki tjá sig um póstinn. Þetta kemur fram í frétt í Morgunblaðinu í dag. Hvaða póstur er það svo sem þessir öðlingar vilja ekki tjá sig um? Jú, það er tölvupóstur, sem framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs sendi einum stjórnarmanna, sem síðan framsendi á aðra meðlimi stjórnar, þ.á.m. ofangreinda tvo herramenn. Í þessum pósti kom fram að framkvæmdastjórinn hefði smitazt af hræðslu endurskoðandans við að Fjármálaeftirlitið gæti tekið upp á því að fara yfir bókhald sjóðsins.
Ástæða þess að FME gæti haft áhuga á að skoða bókhaldið var sú að lánveitingar til bæjarsjóðs Kópavogs voru komnar fram úr leyfilegu hámarki.
Báðir hafa heiðursmennirnir ofangreindu sakað Gunnar I. Birgisson, fráfarandi bæjarstjóra Kópavogs, og formann stjórnar lífeyrissjóðsins, um að hafa haft uppi blekkingar og sent Fjármálaeftirlitinu aðrar upplýsingar en stjórn LSK fékk í hendur. Með vísan til slíks ósóma væri, að sjálfsögðu, eðlilegt að krefjast þess að Gunnar hyrfi úr stóli bæjarstjóra og bæjarfulltrúa.
Nú er full vissa fengin fyrir því að öðlingarnir tveir voru að öllu leyti fyllilega meðvitaðir um þá þætti málsins, sem þeir telja svo andstyggilega að Gunnar I. Birgisson verði að taka pokann sinn sem bæjarfulltrúi. Það hefur hann nú gert, tímabundið, meðan á skoðun málsins stendur.
Spurningin, sem bíður svars er sú, hvort bæjarfulltrúarnir Ómar og Flosi sjái nú ekki sóma sinn í að fara að eigin ráðum og láti af störfum, tímabundið eða fyrir fullt og allt.
29.6.2009
Grótta vs. Manchester United
Jón Daníelsson, prófessor í fjármálafræðum við LSE líkti samningaferli Íslands við Bretland og Holland við fótboltaleik þar sem ættust við Grótta og Manchester United. Fáir myndu velta lengi fyrir sér, hvernig sá leikur færi, en þeir eru til, sem halda því fram að Grótta hafi unnið.
Það fer ekki á milli mála að Icesave-samningurinn er hreint afleitur gjörningur, þar sem þeir Svavar Gestsson og Indriði H. Þorláksson hafa látið hafa sig að kjánum.
Það var staðið illa að gerð þessa samnings og nú hefur einn ráðherra Samfylkingarinnar, Árni Páll Árnason, gengizt við því að afleitlega hafi verið staðið að allri málsmeðferð þegar heim var komið með plaggið.
Plaggið sjálft er illa unnið og ótrúverðugt. Það býður upp á efnahagslegar hörmungar, sama hvernig viðskiptaráðherra reynir að réttlæta tilurð þess og hvað kunni að gerast, verði það ekki samþykkt.
![]() |
Getum staðið við Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.6.2009
Opinber rassskelling
Við komumst, vona ég, aldrei á það stig að farið verði að aflífa glæpahunda opinberlega, eða aflífa þá yfirleitt.
Það næsta, sem unnt væri að komast Sharia-lögum hér á Fróni væri að húðstrýkja misyndismenn opinberlega. Þessari refsingu ætti þó eingöngu að beita þegar í hlut ættu dýraníðingar. Þá skiptir ekki máli hvort í hlut eiga hestar, kindur eða hundar.
Slík óbermi skal færa á torg, kalla borgarana til vitnis, og hýða síðan ótæpilega.
![]() |
Handtekinn fyrir illa meðferð á hundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 01:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2009
Enn af lífeyrissjóðum
Í pistli Agnesar Bragadóttur í sunnudagsblaði Morgunblaðsins er aðeins snert á þeim fjármálafurstum, sem flestir eru enn að, forsvarsmönnum lífeyrissjóðanna.
Undirstaða skrifanna er bók Jóns F. Thoroddsens, Íslenska efnahagsundrið, flugeldahagfræði fyrir byrjendur. Agnes er ekki yfir sig hrifin af vinnslu og frágangi bókarinnar og tínir til ásláttarvillur, málvillur, staðreyndavillur og hroðvirknislegan prófarkalestur sem helztu galla ritsins. Undir þetta tek ég sem og það að þegar slíka annmarka er að finna á riti um grafalvarlegt efni, fer ekki hjá því að stórlega dregur úr trúverðugleika þess.
Inntakið í skrifum Agnesar eru þó ekki tæknilegur ritdómur, heldur fer hún yfir þá þætti, sem nokkuð hafa verið í umræðunni undanfarna daga, málefni lífeyrissjóðanna. Fram kemur að a.m.k. þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins, VR, LSR og Gildi, töldust til sérstakra vina Kaupþings. Áttu þeir mjög umfangsmikil viðskipti við bankann. Það er svo sem ekki í frásögur færandi, en í bók Jóns kemur fram og Agnes tíundar í grein sinni, að forsvarsmenn þessara lífeyrissjóða hafi þegið verðmætar gjafir og boðsferðir af Kaupþingi.
Hlutverk stjórnenda lífeyrissjóða er fyrst og fremst að ávaxta fé okkar, sem hefur verið gert að greiða til þeirra iðgjöld. Eðli málsins samkvæmt þurfa þeir að hafa mikil samskipti við háttsetta starfsmenn banka, en það má ekki vera hægt að tengja þessi samskipti við neitt annað en hagsmuni okkar eigenda lífeyrissjóðanna, núverandi og verðandi lífeyrisþega. Við, þessir lífeyrisþegar, núverandi eða verðandi, gerum þá kröfu að samskiptin séu hafi yfir allan grun um neitt annað en eðlileg samskipti í okkar þágu. Við förum að hafa alvarlegar efasemdir um heilindi starfsmanna lífeyrissjóðanna, þegar sögur berast af utanlandsferðum, laxveiðiferðum og dýrum gjöfum.
Skondið er að við hlið greinar Agnesar Bragadóttur er pistillinn Staksteinar. Þar er fjallað um vandræðaganginn hjá Lífeyrissjóði starfsmanna Kópavogs. Kunnara er en svo að rekja þurfi nánar að Sjálfstæðismaðurinn Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, lét tímabundið af störfum bæjarfulltrúa vegna opinberrar rannsóknar á starfsemi sjóðsins. Nú er ljóst að tveir bæjarfulltrúar, sem hátt hafa haft um Gunnar með ásökunum um blekkingar, Framsóknarmaðurinn Ómar Stefánsson og Samfylkingarmaðurinn Flosi Eiríksson voru báðir með í ráðum þegar sendar voru upplýsingar til Fjármálaeftirlitsins og báðir vissu þeir að bókhald LSK myndi ekki standast skoðun FME. Samt sitja þessir heiðursmenn áfram í stjórn lífeyrissjóðsins. Gunnar I. Birgisson varð, að þeirra kröfu, að fara.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2009
Klassagolf
Það er ekki nóg að þarna hafi verið að sjá kempurnar Hermann Hreiðarsson, Eið Smára Guðjohnsen og Sol Campbell á gagnmerku góðgerðarmóti í Vestmannaeyjum.
Það, sem skiptir máli er klæðnaðurinn! Svona klæddir mæta aðeins sannir herramenn til leiks í golfi. Hreinn klassi.
![]() |
Kunnir kappar á Herminator golfmótinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt 29.6.2009 kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)