13.7.2009
Hámark ósvífninnar
Það er hámark ósvífninnar að ríkisstjórnin með Samfylkingarmenn í broddi fylkingar skuli predika um óþekktar stærðir hagtalna þegar að því kemur að ræða og meta efnahagslega óvissu og áhrif hennar á almenning og þjóðarbúið, í samhengi við skuldir.
Það er einmitt þessi sama ríkisstjórn, sem bjó til þessa óvissu með því að spila rassinn úr buxunum með arfaslökum samningum um Icesave-klúðrið við Breta og Hollendinga.
Það er einnig þessi sama ríkisstjórn, sem ákveður að verja dýrmætum tíma í þras um viðræður við Evrópusambandið í stað þess að vinna hörðum að því að koma bönkunum á lappirnar, að koma heimilunum til hjálpar og gera atvinnuvegunum kleift að sinna sínu hlutverki. Það er eytt dýrmætum tíma á Alþingi um mál, sem ekki er vissa fyrir að meirihluti sé fyrir í þinginu.
Það er eytt dýrmætum tíma í argaþras um mál, sem allar líkur eru síðan fyrir að hljóti ekki náð fyrir augum almennings ef til þjóðaratkvæðagreiðslu kemur.
Efnahagsleg óvissa verri en skuldir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:15 | Facebook
Athugasemdir
Það er ástæða fyrir þessu þrasi Samfylkingarinnar um ESB, ESB er nefnilega svarið þeirra við öllu sem uppá kemur.
Jóhannes H. Laxdal, 13.7.2009 kl. 15:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.