5.7.2009
Á þetta að valda ótta?
Miðað við þá galla, sem fram hefur komið að eru (og voru) á evrópska innstæðutryggingakerfinu, þá held ég að málsókn Hollendinga geti vart orðið nema til góðs.
Ekki tókst, að því sem sagt er, að fá hollenzk eða brezk stjórnvöld til að útkljá deilurnar fyrir dómstólum.
Sú fullyrðing hollenzka seðlabankans, að ekkert hafi verið hægt að aðhafast vegna aðfara Icesave-manna er út í hött. Hafi raunverulegur vilji verið til staðar hjá hollenzkum stjórnvöldum til að hafa áhrif á gang mála og tryggja fjárhagslegt öryggi eigin þegna, hefðu þau svo sannarlega ekki látið formsatriði um rekstur erlendra bankastofnana standa í vegi sínum.
Undirbúa lögsókn gegn Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:08 | Facebook
Athugasemdir
Miðað við hvernig Bretar og Hollendingar gerðu þetta, segjum við þá ekki bara nei, við höfnum málssókn á hendur okkur.
Það virðist vera normið í ESB og hjá þessum gerspilltu og rugluðu ríkjum.
Annars er ég alveg sammála því að full trygging innistæðna var algjört rugl frá fyrsta degi.
Ellert Júlíusson, 5.7.2009 kl. 19:12
Þetta aumingja fólk í Niðurlöndum telur sér fært að lögsækja íslenska ríkið vegna skýrslu, sem íslenskum stjórnvöldum þótti ekki ástæða til að setja í skjalasafnið varðandi Icesave sem sett var út á http://www.island.is/. Í síðustu viku. Skýrsla þessi er ekki til á hollensku, en nú er verið að þýða hana yfir á ensku tjá menn mér í hollenska fjármálaráðuneytinu. Ég skrifaði samningamanni Hollendinga, Johan Barnard, til að fá þessa skýrslu og hef greint frá því á bloggi mínu hér, hér og hér.
Skýrsla þessi hafði verið sett út á net fjármálaráðuneytis Hollands, en íslensk yfirvöld gerðu ekkert þótt þau hefðu fengið hana í hendur í Kaupmannahöfn þann 15. júní sl., þegar Svavar Gestsson hélt fund og mikla veislu fyrir yfirmenn samninganefnda Breta og Hollendinga. Skýrslan var svo aðeins lítillega kynnt í Morgunblaðinu og kom stutt klausa um hana þann 17. júní, sem fáir tóku eftir.
Hollenski samningamaðurinn Johan Barnard vill annars ekkert upplýsa mig hvað var annars rætt á fundi þessum hjá DDR-styrkþeganum með framlenginguna í Kaupmannahöfn.
Eigum við ekki að spyrja Svavar Gestsson og Indriða Þorláksson: Af hverju var verið að pukrast með skýrslu Hollendinganna, sem nú á að nota til að lögsækja Íslenska ríkið með? Ætla þeir að afhenda hana í dag? Var það vegna þess að þeir gátu ekki lesið hana sjálfir? Segið mér ekki að íslenska samninganefndin hafi ekki haft hollenskan túlk????
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 6.7.2009 kl. 06:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.