7.5.2009
Píslarganga skuldara
Meðferð máls samkvæmt þeim lögum er ekki háð nafnleynd. Nafnbirtingin í Lögbirtingablaðinu er innköllun til þeirra kröfuhafa sem telja sig eiga kröfu á hendur viðkomandi einstaklingi."
Þetta er haft eftir Eddu Andradóttur héraðsdómslögmanni, sem skipuð hefur verið umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum vegna samningsskulda.
Það eina, sem vantar í raun til að gera greiðsluaðlögun að því miðaldatóli, sem því er greinilega ætlað að vera, er að umsækjendur skuli settir í gapastokk og síðan hýddir opinberlega að lokinni hæfilegri dvöl.
Erfitt er að hugsa sér ómanneskjulegri og meira niðurlægjandi aðgerð fyrir fjölskyldur, sem þurfa á aðstoð og stuðningi að halda. Hefði nú ekki verið unnt að setja sérlög, sem tækju tillit til aðstæðna þeirra, sem þurfa að leita erfiðra samninga vegna skuldastöðu sinnar?
![]() |
Aðlögun fyrir opnum tjöldum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.