Undirlægjuháttur

Það er án nokkurs efa mikill akkur í því fyrir þær þjóðir, sem við eigum í útistöðum um þessar mundir, Breta og Hollendinga, að fá innlegg í baráttu sína frá aðilum á borð prófessor við Háskóla Íslands.

Hvað á maðurinn við þegar hann segir í grein í Aftenposten að „Icesave-byrðin hefði verið blásin út á Íslandi og víðar“?

Áttar hann sig ekki á því að um er að ræða hagsmuni íslendinga í nútíð og um langa framtíð?

Vitað er að prófessorinn lætur ekkert tækifæri ónotað til að ganga erinda pólitískra vina sinna í samfylkingunni, en ég held að menn hljóti að sammælast um að hér hefur verið gengið of langt í undirlægjuhætti við málstað, sem gengur þvert á hagsmuni Íslendinga.

Það versta við þessi skrif er að þau eru unnin á tímamótum, sem orðin eru til vegna höfnunar Icesave-laganna. Það var farið að glitta í ljós í myrkrinu. Það var að verða til hljómgrunnur fyrir málstað Íslendinga. Málsmetandi aðilar voru byrjaðir að átta sig á að kröfur Breta og Hollendinga eru óraunhæfar og ósanngjarnar.

Við þurfum ekki á málflutningi aðila á borð við prófessorinn að halda til að gera okkur erfiðara fyrir.

Spurning, sem óhjákvæmilega vaknar er: Hvað gengur manninum til? 

 


mbl.is Gegn hagsmunum Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Maðurinn sagði bara sannleikann og er krossfestur fyrir það.  Heimska og þjóðernishroki ræður ríkjum á Íslandi í dag og þjóðinni mun því miður blæða fyrir það.  Töfin á Icesave hefur þegar kostað miklu meira en höfuðstóllinn er.

Óskar, 3.2.2010 kl. 03:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband