16.5.2009
Gætum þess að drepa ekki sjúklinginn
Hvort sem mér líkar það betur eða verr (mér líkar það verr), þá er grunnhugmyndin að baki viðhalds hás stigs stýrivaxta að sumu leyti réttlætanleg. Með háu vaxtastigi er, væntanlega, dregið úr neyzlu og þar með stuðlað að jákvæðum viðskiptajöfnuði. Jákvæður viðskiptajöfnuður er nokkuð, sem Íslendingar hafa ekki látið sig miklu skipta til þessa.
Hugmyndafræðin segir okkur að hátt vaxtastig dragi ekki aðeins úr neyzlu, heldur sé það hvati til aukins sparnaðar. „Sparnaður“ er annað hugtak, sem ekki hefur átt uppá pallborðið hjá okkur. Við höfum ferðazt, keypt og spanderað.
Ekkert er nema gott um aukinn sparnað að segja, en hafa verður í huga að það er ekki nóg að spara, heldur verður að vera til staðar virkur lánsfjármarkaður. Bankastjórar ríkisbankanna láta hafa það eftir sér að nóg sé um lánsfé í bönkunum. Vandinn er bara sá, að fyrirtækin ráða ekki við að nýta þetta fjármagn vegna þess hvað það er dýrt; vaxtastigið er of hátt.
Við verðum að gefa okkur það, að þeir erlendu herrar, sem, endanlega, hafa síðasta orðið um stig vaxta í landinu finni leið framhjá teoríunni og átti sig á því að góður læknir gerir allt, sem hann getur til að lækna sjúklinginn. Hann hlýtur þó að þurfa að gæta þess að meðferðin sé ekki svo harkaleg að hún gangi af sjúklingnum dauðum.
![]() |
Vaxtastefnunni hafi verið lýst í viljayfirlýsingunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta erfiða mál verður ekki betur reifað Gunnar
Finnur Bárðarson, 16.5.2009 kl. 16:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.