3.5.2009
Dapurlegt
Það er ekki hægt að segja að margar ánægjufréttir berist af atvinnulífinu þessa dagana.
Í þessu tilviki bætast 50 manns í stóran hóp atvinnulausra. 50 fyrrverandi starfsmenn fyrirtækis, sem til skamms tíma var í blómlegum rekstri, munu nú rölta um án þess að hafa neitt að gera. Fyrir það að hafa ekkert að gera þurfa þeir að sækja fjármuni fyrir nauðþurftum til ríkisins.
Hvað veldur? Jú, m.a. það að núverandi ríkisstjórn Samfylkingar og vinstri grænna hefur haldið sér til hlés í 90 daga og forðazt það eins og heitann eldinn að koma atvinnulífinu til hjálpar.
Öllum starfsmönnum sagt upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:18 | Facebook
Athugasemdir
Spurning hvort það sé búið að selja þetta ...
Með hesthús og heitan pott í stofunni
Dreymi þig um að geta horft á kvöldfréttirnar í heitapottinum við róandi snark í arineldi þá er tækifæri til þess núna. Eigirðu 180 milljónir á lausu eða sért í góðu sambandi við bankann þinn geturðu nú fjárfest í 500 fermetra höll Kópavoginum.
Verktakinn Þorgeir Björgvinsson og Klara Guðrún Hafsteinsdóttir hundaræktandi settu nýlega á sölu stórglæsilegt einbýlishús sitt við Asparhvarf í Kópavogi.
Húsið er 501 fermetri og skiptist í 410 fermetra íbúð, 31 fermetra bílskúr og sextíu fermetra hesthús fyrir átta hesta.
Sérhannaðar innréttingar eru í allri íbúðinni og eru eldhúinnréttingar og sólbekkir búnir svörtum granítplötum. Afar veglegt kolsvart borðstofuborð úr graníti prýðir borðkrókinn, og fylgir það húsinu, enda ekkert grín að flytja mörg hundruð kílóa granítplötur langar vegalengdir.
Afar fullkomið gólfhitakerfi er í öllu húsinu. Þá er raflkerfi hússins mjög vandað og mikið af innbyggðri lýsingu frá Lumex. Náttúruflísar eru á öllum gólfum hússins nema í hesthúsi. Ekki væsir um ferfætlingana heldur, en gólf hesthússins er lagt steindúk og básarnir steyptir með grindum úr ryðfríu stáli.
Og þar sem líklega er ekki gaman að þrífa fimm hundruð fermetra hús, en það er í það minnsta gert öllu bærilegra með innbyggðum ryksugubörkum í veggjum allra herbergja.
Viðar Marínósson, fasteignasali hjá Remax, segir að húsið sé eitt það glæsilegasta á höfuðborgarsvæðinu og að verðmiðinn sé í raun ekki svo fjarri byggingakostnaði. Þannig hafi bara hljóð og sjónvarpskerfið kostað um tíu milljónir króna. Það er frá Bang og Olufsen, afar fullkomið, og er hægt að stýra því með fjarstýringu frá flestum herbergjum hússins.
Sævar Einarsson, 4.5.2009 kl. 09:47
Huh...Heimir og Þorgeir hafa verið á hausnum síðan 2006, spyrjið bara lánadrottnanna!
OMG, 4.5.2009 kl. 11:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.