Ályktun um val á ritstjóra er út í hött

Það er hlutverk hagsmunasamtaka á borð við Blaðamannafélag Íslands að berjast fyrir hagsmunum félagsmanna sinna, en þegar stjórn BÍ segist í ályktun „telja þá ákvörðun eigenda blaðsins, að ráða umdeildan stjórnmálamann sem ritstjóra Morgunblaðsins rýra trúverðugleika blaðsins“ er hún komin langt út fyrir sitt verksvið og farin að fjalla um mál, sem koma henni akkúrat ekkert við.

Vissulega er ástæða til að álykta um mál starfsmanna Morgunblaðsins, sem missa vinnuna eftir langa og góða þjónustu, en innlegg um persónu nýs ritstjóra og að fara á flug með hugleiðingar um afskipti hans af stjórnmálum og störf sem seðlabankastjóri séu þess eðlis „að blaðamenn geta ekki við unað“ virkar sem hreinn kjánaskapur.

Við öðru en kjánaskap er þó varla að búast þegar haft er í huga að formaður félagsins, langhaldin biturð í garð Sjálfstæðisflokksins, hefur næsta örugglega átt stóran þátt í orðun þessarar ályktunar.

 


mbl.is Harmar uppsagnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ég er fyllilega sammála Blaðamannafélaginu og tel ályktun þess málefnalega.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 25.9.2009 kl. 01:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband