Hómer Simpson og pólitíkin

Það má vel vera að einhverjum hafi verið skemmt um stund þegar trúðarnir undir forsytu Jóns Gnarr tóku til við að stjórna Reykjavíkurborg.

Eins má búast við að liðinu úr Þingholtunum og nágrenni hafi þótt það afar merkilegt að Dagur B. Eggertsson skyldi leggja lag sitt við trúðahjörðina og veita henni andlegan stuðning og blessun.

Ég held að þeir, sem enn finnst leikurinn fyndinn geti ekki verið orðnir margir. Framkoma aðaltrúðsins gagnvart leikskólakennurum og ummæli í sjónvarpi um önnur mál er satt að segja orðin það forkastanleg að hverjum heilvita manni hlýtur að ofbjóða.

Svo á að fara að nota þetta módel sem fordæmi á landsvísu. Guð sé oss næstur.  


mbl.is Leikskólastjórnendur mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband